Mér hefur borist umkvörtun þess efnis að ég uppfæri þetta blogg ekki nógu oft.
Ég held bara að ég hafi lent í erfiðleikum með efnistökin. Hafði ætlað þetta fyrir stað fyrir hugrenningar mínar og svo þegar allt kemur til alls, þá dettur mér ekkert í hug til að skrifa hérna.
Ég get ekki einu sinni bloggað um bækurnar sem ég er að lesa vegna þess að ég virðist varla komast í gegnum nokkurra. Vandamálið er kannski að ég er bara reynda að gera hitt og þetta í frítímanum. Alltaf að skrifa eitthvað og líður illa þegar ég er ekki að skrifa sem þýðir reyndar að ég sit mikið fyrir framan sjónvarpið og læt mér líða illa.
Ja, reynar verður maður að horfa á sjónvarpið til að uppfylla dramakvótann. America’s Next Top Model og svo Project Runway. Tíska og dramatík. Besta blandan.
En ef ykkur langar að leggja eitthvað gott til málanna, þá megið þið mæla með einhverjum góðum íslenskum bókum fyrir mig að lesa (og þið getið sleppt því að nefna Arnald Indriða – er að reyna að vinna mig í gegnum Mýrina en klunnaleg samtölin eru að fara pínu í taugarnar á mér).

Sirrý systir sagði,
júlí 5, 2006 kl. 3:41 pm
Þetta er ekki gott mál þegar ekkert gerist til að skrifa um en samt er enginn tími til að skrifa. En ég veit ekki um þig en ég var að byrja að lesa Nótt á Mánaslóð eftir Birgittu H. Halldórsdóttur og líst bara nokkuð vel á en er reyndar bara á bls. 50 eða eitthvað svoleiðis. Reyndar er farið svolítið hratt yfir sögu en það gæti breyst. Svo sá ég Milan Kundera á borðinu þínu um daginn, ertu búin að lesa hana og hvernig er hún? Annars er nú bara gaman að geta hrært aðeins upp í þér og látið þig halda að þú verðir að skrifa eitthvað svo að ég kíki á bloggið. Hafðu það gott í Danaveldi og passaðu þig á pöbbunum.
kv Sirrý P.