Ég ætlaði ekki að skrifa aðra færslu strax en ég get bara ekki orða bundist.
Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Siv Friðleifsdóttir sé dottin út af þingi. Og í dag þegar ég var að keyra úr Smáralindinni (fór í snyrtivöruleiðangur þangað), sá ég flettispjald með auglýsingu þar sem Siv er í heitum faðmlögum við Samúel Örn Erlingsson. Maður hefði haldið að þau hefðu betri hnöppun að hneppa en að leika í rómantískum gamanmyndum. Ég held að það auki ekki fylgi.
