Ég get ekki kvartað undan lognmollu í lífi mínu eins og sakir standa. Ekki nóg með það að ég sé í fullri vinnu heldur er ég líka komin í fjarnám í Kennaraháskólanum í kennsluréttindum. Ég tek reyndar bara 5 einingar núna á haustönn en það verður sko nóg að gera – og maður þarf að vera hugmyndaríkur. Og alltaf þegar slíkar kröfur eru gerðar, verð ég hryllilega andlaus. Ég á t.d. að skila Power point fyrirlestri sem á að vera eins og stuttur fyrirlestur fyrir kennslustund, eftir tæpan mánuð og mér dettur ekkert í hug.
Svo er nóg að gera fyrir utan það. Ég er að fara í fjögra daga námsferð til Noregs í næstu viku með vinnunni, ferðin er á vegum Dómstólaráðs. Ég veit reyndar voðalega lítið hvað við verðum að gera þarna – dagskráin er alls ekkert þétt skipuð. Eitthvað á föstudeginum og laugardeginum en þar sem við komum snemma á fimmtudaginn og förum seint á sunnudaginn, höfum við ansi rúman tíma til að gera hitt og þetta.
Svo ég snúi mér að einhverju öðru en sjálfri mér.
Ég kíkti aðeins í nýjasta Mannlífið (þessu með skipstjóranum sem bjargaði flóttamönnunum í Miðjarðarhafinu) og þá sérstaklega greinina með bestu og verstu bloggara landsins og mikið var ég sammála álitsgjöfunum þar eða svona að mestu leyti.
Hef kannski ekki alveg alltaf húmor fyrir Mengellu (sem var #1) en það er mitt vandamál. Stebbi Páls er jafn góður og nafni hans Fr. á moggablogginu er leiðinlegur. Enda var stebbbifr valinn versti bloggarinn og honum er best lýst í þessari færslu Hnakkusar (sem var auðvitað einn af þeim bestu). Og svo var Ármann Jakobs á listanum sem mér persónulega finnst vera besti bloggarinn nefndur í greininni (þó svo hann kalli sig ekki bloggara).

Begga sagði,
september 6, 2007 kl. 8:28 pm
Mikið er ég nú ánægð með að þú hafi fundið mig –
Svo er það vara Osló posló
Úje
Kolfinna sagði,
september 7, 2007 kl. 12:01 am
Hehe – þú hefur alveg mánuð í að finna efni – ef þú vilt gera það í ekta kennarafíling ekki pæla neitt mikið í því fyrr en einum til tveimur dögum áður – tímaskortur er venjulega það sem tilheyrir þessu starfi ;o) Og einhverra hluta vegna þá spretta hugmyndir aðallega upp undir tímapressu. En ef þú vilt gera þetta á sem „eðlilegastan“ hátt þá er best að finna einhverja kennslubók og byrja bara á fyrsta kaflanum – þ.e. vinna efnið út frá honum, eins og þú myndir gera í raunveruleikanum.
Ég sá þennan lista og hafði lítið út á topp 10 að setja – hefði raðað þeim aðeins öðruvísi (skil samt ekkert af hverju ég var ekki á honum ;p).
Ef ég heyri ekkert í þér fyrir næstu viku – góða skemmtun í Norge
Begga sagði,
október 5, 2007 kl. 1:45 pm
HALLÓ!! Ertu bara hætt stelpa.
BLOGGAÐU, annars verð ég brjáluð.
kv, af 3. hæðinni