Luncheon meat

Ég þurfti að eyða einni færslunni á þessu bloggi í gær eða fyrradag. Ég var að fá u.þ.b. hundruðustu tilkynninguna um svona “spam” komment á henni þrátt fyrir að ég hefði skrifað hana fyrir meira en ári síðan. Það nefnilega loksins rann upp fyrir mér ljós. Ég hafði verið að tala um auglýsingar um stinningarlyf sem að gengu þá í fjölmiðlunum og nefndi á nafn tvær þekktar tegundir stinningarlyfja. Það hefur komið “spam” botunum til og þeir haldið að ég vildi vita um bestu dílana á slíkum lyfjum.

Mér hefur fundist “spam” frekar fyndið fyrirbæri þó hvimleitt sé (reyndar mæli ég með gmail til að losna við mesta ruslið, spam filterinn hjá þeim virkar og hann tekur ekk óvart alvörutölvupóstinn). Maður veltir fyrir sér hverjir í ansk. kaupa sér stinningarlyf og annað slíkt í gegnum svona auglýsingar.  Ég get bara ekki trúað það sé til í alvörunni fólk sem hugsar “hey, þetta hlýtur að virka fyrir sprellann minn!” þegar það sér subjectlínuna: Having a large and nice member is affordable now (eða þaðan af verri fyrirsagnir).

1 ummæli

  1. BKB sagði,

    nóvember 29, 2007 kl. 10:16 am

    Jæja mín kæra – á ekkert að fara blogga fyrir mann?!! Mér er spurn.

    Kveðja af 3. hæðinni.


Rita ummæli