Mamma gamla kom til mín á laugardaginn svona rétt þegar ég hafði lokið við að troða mig út eins og grís á jólahlaðborði starfmannafélags Menntaskólans á Akureyri.
Hún skildi nú ekkert í því hvað ég hefði verið að tala um að fá hana til að þrífa og svona þar sem henni fannst allt spikk og span hjá mér. Ég sem skúraði bara smá kvöldið áður en hún kom. En hún straujaði fyrir mig sem var æði.
Við fórum í leikhús á laugardaginn og sáum Músagildruna sem var fínt. Verð að fara meira í leikhús hérna á Akureyri. Svo á sunnudeginum eyddum við smá pening og skoðuðum okkur um í búðum á Akureyri. Við gerðumst líka menningalegar og komum við á listasafni Akureyrar. Fórum svo í Jólagarðinn sem var ansi troðinn af fólki en enduðum svo að troða okkur út af kökum á kaffihlaðborði í Kaffi Vin sem er við Hrafnagil.
Ég þurfti nú eitthvað að þykjast að vinna í gærkvöldi svo við héldum okkur heima og svo var mamma bara að dingla sér hérna hjá mér í dag á meðan ég var að kenna. Ég kom heim í þennan fína hádegismat og leyfði mér meira að segja að fá mér kríu svona út af því að ég gat verið viss um að móðir mín myndi nú pikka í mig ef ég væri líkleg til að sofa yfir mig. Svo þegar ég var búin að kenna, kom ég heim og við fórum aðeins í bæinn. Svona til þess að hún gæti eytt pening í myndlist. Fékk hana til að kaupa ofsalega fallegt grafíkverk eftir Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur.
Þá var haldið heim á leið til fá sér í gogginn áður en ég myndi senda kellu til Reykjavíkur aftur. Þangað er hún víst komin heil og höldnu og innan við tvær vikur þangað til að ég sé hana aftur þegar ég fer til Reykjavíkur í jólafríinu.
Ég er farin að telja niður þó svo ég eigi eftir að gera svo ótal margt. Klára að fara yfir ritgerðir og kaupa jólagjafir og svona. Gef öllum bara í sund á Akureyri og gjafakort upp á ís í Brynju. Þá hlýtur að verða stöðugur straumur af fólki hingað.

Dómritarinn (bkb) sagði,
desember 10, 2008 kl. 9:46 pm
Þetta hefur greinilega verið hin besta helgi hjá ykkur mæðgum – þessar mömmur eru svo ansi hjálplegar svona við húsverkin ;o)
Bestu kveðjur úr sollinum