Nýja árið og smá kattarfár

Gleðilegt nýtt ár til ykkar sem kynnu að lesa þetta blogg. Árið 2009 ætlar að byrja með látum hjá mér því nú er skollin á prófatíð í MA og mikið stuð varðandi prófasamningu, yfirsetur og svo þarf maður víst að fara yfir einhver próf líka.

Ég var í minni fyrstu yfirsetu í dag og það gekk nokkuð áfallalaust þó svo blessaðir nemendurnir gerðu tilraunir til að spyrja mig um spurningar á prófinu sem var nota bene efnafræðipróf. Allt er hey í harðindum segi ég.

Hátíðarnar voru mjög indælar en það var eiginlega gott að komast aftur í vinnuna þrátt fyrir að ég gæti alveg hugsað mér að halda áfram að sofa út og svona.

Hérna eru tvö myndbandsbrot af því sem ég tók mér fyrir hendur um hátíðarnar.

Myndband 1

Myndband 2

(Þetta er Gandalfur, kettlingurinn hennar Ásu vinkonu minnar og það er ég sem er atast þarna í greyinu).

4 Ummæli

  1. Sirrý systir sagði,

    janúar 8, 2009 kl. 11:02 pm

    Ég sem stóð í þeirri trú að þú værir kattavinur. En hvað um það kötturinn virðist skemmta sér vel. Gangi þér vel í vinnunni og láttu ekki blessaða unglingana plata þig til að svara fyrir sig efnafræðispurningum. Þau gætu fallið, eða þannig. Hafðu það sem best heyri kannski frá þér fljótlega.
    kv. Sirrý

  2. sigrún sagði,

    janúar 10, 2009 kl. 7:13 pm

    Gleðilegt ár! Takk fyrir það gamla. Hélt að þú mundir láta sjá þig á gamla vinnustaðnum í jólafríinu (kannski hefur þú gert það, var sjálf í fríi) Kv. SAN

  3. Fanney sagði,

    janúar 21, 2009 kl. 1:03 pm

    bara kvitta :)

    Gleðilegt ár.. og jól..og allt það.. sjáumst vonandi hressar fljótlega :)

  4. Begga sagði,

    febrúar 16, 2009 kl. 9:58 pm

    Sæl mín kæra.

    Er farin að lengja eftir færslu.

    Kveðja Begga.


Rita ummæli